Valkvíði á háustigiMaríanna Magnúsdóttir
Halló bjútíbollurVið Tara erum hérna enþá að lífi :D
Erum meira segja að fara á sýningu 1 helgina í Maí já Tara kryppulína ætlar að reyna aftur hehe
Tara er öll að koma til í innkallinu og taumgönguni en var orðin frekar léleg í þessu aðalega þó vegna þess að ég var ekki nógi ströng :P
En að mér.........Ég er með valkvíða á háu stigi hérna og mér vantar alveg oggu ponku mikla hjálp.
Málið er að í haust þá var planið alltaf að fara til Akureyrar og læra hjúkrunarfræði....
En síðan fór ég að skoða sjálfboðastörf í indlandi og er búin að vera í tölvupósta sambandi og símasambandi við konuna sem sér um þetta og var eigninlega komin á þá ákvörðun að fara bara til indlands og fresta skólanum þar sem ég verð 100% með vinnu eftir að ég kem heim......... en ég veit samt ekki hvað ég á að gera !!!!
Kostir við Indland
- Fæ lífsreynslu sem er ómetanleg
- Geri gang hjálpa munaðarlausum
- Fæ að kynnast annari menningu og lífi
- Verð brún haha
- Fæ að hjálpa veikum dýrum
- skoða Indland
- og upplifi drauminn minn
- Langt í burtu frá fjölskyldunni og Töru minni :(
- Þarf að pissa í gat í jörðini
- þarf að ganga í svonna búining-http://www.designersalwarkameez.com/
- Fæ pottó í magan
- Dýrt !!!
- og ég er ein í ókunnugulandi :S

Maríanna óduglega og Tara veikulíusMaríanna Magnúsdóttir
HæhæVið erum enþá hérna í góðum fíling ! tölvan mín var ekki að virka og ég var voða voða löt þess vegna erum við ekkert búnar að láta heyra í okkur.
Það er margt sem er búið að vera að gerast síðan seinast.....
- Tara Dúlla "Hlýðnasta" kláraði Hlýðni 1 ekki með glæsibrag en við mæðgur segum að það hafi verið vegna snjókomunar þar sem Tara Dúlla prinsess leggst ekki í snjó eða slyddu...... Það er bara svoleiðis og PUNKTUR. Þannig Tara fékk vara 104 eða 108 stig man það ekki alveg. En við ætlum að skora mikið hærra í bronsinu þegar það er hlýtt og þurrt út ;)
- Maríanna varð stúdent *lófaklapp* duglega stelpa
- Það koma Jól og Áramót með miklum göngum og svonna fínerí og við átum á okkur gat.
- Moli vinur og Fjólavinkona eru flutt til Bandaríkjana. Tara lítla saknar nú Mola svolítið !
- Tara er líka búin að labba upp alla Esjuna það vantar sko ekki kraftinn :D:D
Tara Dúlla er búin að vera frekar mikið veik greyið. Fékk eittherja veiru í magan og var búin að æla og niðurgangast öllu sem hún borðaði þannig hún var drifin upp á Dýraspítali því ekki mátti píslið við þessu. ÞAr var hún sprautuð og fékk heim með sér sérstakan mat, þarmapasta, sýklyf og ógleðistöflur og er hún öll að koma til núna píslið....
En já ég hef voða lítið meira að segja þannig ég ætla að láta nokkrar myndir bara inn og njótið ;***
Maríanna stúdína og Tara Veikulína




Ást er ! svo fallegtMaríanna Magnúsdóttir
‘Þegar amma mín fékk liðagigtina gat hún ekkibeygt sig niður til að lakka táneglurnar lengur.
Svo að Afi minn gerði það alltaf fyrir hana jafnvel
eftir að hendurnar hans fengu liðagigt líka. Það er Ást.'
Rebekka 8 ára
‘Þegar einhver elskar þig, segja þeir nafnið þitt öðruvísi.
Þú bara veist að nafnið þitt er öruggt í munninum á þeim.'
Billy - 4 ára
‘Ást er þegar stelpa setur á sig ilmvatn og strákur setur á sig rakspíra
og þau fara út og lykta af hvort öðru.'
Karl - 5 ára
‘Ást er þegar þú ferð út að borða með einhverjum og hann gefur þér frönskurnar
sínar án þess að láta þig gefa sér nokkuð af þínum eigin.'
Chrissy - 6 ára
Ást er það sem lætur þig brosa þegar þú ert þreytt.'
Terri - 4 ára
‘Ást er þegar þið kyssist öllum stundum. Síðan þegar þið eruð þreytt á að kyssast viljið þið enn vera saman og tala meira.
Mamma mín og Pabbi eru þannig. Það er ógeðslegt þegar þau kyssast'
Emily - 8 ára
‘Ef þú vilt læra að elska meira skaltu byrja á vini sem þú hatar,'
Nikka - 6 ára
(við þurfum nokkrar milljónir af Nikkum á þessa jörð)
‘Ást er þegar þú segir strák að þér finnist skyrtan hans falleg,
og þá gengur hann í henni alla daga.'
Noelle - 7 ára
‘Ást er eins og lítil gömul kona og lítill gamall maður sem eru
enn vinir jafnvel eftir að þau kynnast hvort öðru svo vel.'
Tommy - 6 ára
‘Ást er þegar hvolpurinn þinn sleikir þig í framan
eftir að þú skildir hann eftir einan allan daginn.'
Mary Ann - 4 ára - Mér finnst þetta best ! og hún heitir næstum alveg eins og ég
‘Ég veit að stóra systir mín elskar mig vegan þess hún gefur mér
öll gömlu fötin sín og verður að fara í búðina og kaupa ný.'
Lauren - 4 ára
‘Þegar þú elskar einhvern, fara augnhárin upp og niður
og litlar stjörnur koma út úr þér.' (þvílík sýn)
Karen - 7 ára
‘Þú ættir ekki að segja "Ég elska þig" nema þú meinir það.
En ef þú meinar það áttu að segja það oft. Fólk gleymir.'
Jessica - 8 ára
pirrípúMaríanna Magnúsdóttir
ohhh var búin að gera ótrúlega langt og stór blogg með myndum og alles og ytti óvart á vitlausan takka og tarahhhhhh ! allt farið !Lofa að setja það saman á morgun lofa lofa :D
Set mynd til að gleðja ykkur á meðan þið bíðið
sýnignin og ALLT þaðMaríanna Magnúsdóttir
HÆHÆTara hér ;) Þá er allt þetta sýningarstúss loksins búið :D
Ég var lang stilltust þarna ! ég var svo sybbin að ég gelti ekki, urraði eða vældi ég bara sta og stóð hjá Maríönnu minni og lét hana greiða mér

Síðan fórum við inn í hringinn og vorum ótrúlega flottar saman og ég meira segja gaf dómarinum einn blautan koss þegar hún var að skoða mig. Síðan löbbuðum við aðeins meira þarna um og stilltum okkur upp og ég stóð kryppulaus mest allan tíman en þetta var alveg korter og greyið Maríanna alveg að drepast í bakinu
.síðan komu úrslitin og þau voru þannig Sara systa- 1 einkunn - 1 sæti. Salka systir 1 einkunn - 2 sæti og ég lítli krypplingurinn með 1 einkunn -3 Sæti. En dómarinn kom til okkar og sagði við Maríönnu að hann hafi séð kryppuna á mér og hún skemmti fyrir okkur
. En dómarinn sagði Maríönnu að láta mig klifra og teygja svo á mér eftir á og þá á þessi kryppa að fara.En Til hamingju allir sem tóku þátt


Það er allt brjál að gera í skólanum hjá Maríönnu verkefni, verkefni og verkefni og próf ! en hún er ða klára stúdentin þannig það má nú alveg láta hana vinna fyrir þessu. Síðan hefur hún voðalega lítið komist með mig í göngur þar sem hún er búin að vera að vinna svo mikið.
En ég, Aris, Sóldís og Moli fegnum að hlaupa og velta okkur og hlaupa og smá slást líka niðrí paradísardall í gær þannig ég tók hana Maríönnu mína í sátt aftur.
Já og svo erum við byrjaðar í Hlýðni 1 líka Alveg ótrúlega skemmtilegt
En Við erum að vinna í því að setja inn fleiri myndir og svonna en ENDILEGA verið dugleg að commenta og svonna
lov lov
Maríanna og Tara Dúlla
Helgin frammundanMaríanna Magnúsdóttir
HÆHÆVið maríanna mín erum ekki alveg að kunna á þetta kerfi hérna ! kunnum ekki að setja inn neinar myndir í bloggin eða neitt ! en það kemur vonandi.
En helgin verður ekkert rosalega spennandi fyrir Maríönnu hún þarf að vinna og vinna og vinna til að halda mér uppi á þessum krepputíma:P. En fyrir þá sem ekki vita þá er ég byrjuð á starter aftur þar sem maríanna segir að ég sé mjóna! Skilur hún ekki að ég er að reyna að líta vel út og ekki vera svonna bolla eins og hún! dísess... haha svo átti nafnið mitt að vera Bolla ! hversu kaldhæðnislegt hefði það nú verið. Þannig ég er að borða Hvolpahvolpamat ! finnst hann reyndar ótrúlega góður sko... ég kvarta ekkert fæ að borða 3 á dag en maríanna er allt í einu byrjuð á að taka af mér matin ef ég sé ekki búin að borða innan hálftíma ! HALLÓ ég þarf minn tíma til að velja hvert korn fyrir sig ! ég skófla þessu ekkert í mig. Skila meiri segja fullorðnisfóðrinu(yorka) aftur í skálina því maríanna segir að ég eigi að borða starter. hvað er hún þá ða setja hitt með skil ekkert í henni.... usss en nóg af mat !
Ég er að fara á sýningu næstu helgi ! Ég ætla sko að rústa þessu... samt er maríanna allataf að tuða um þessa kryppu sem ég set á bakið og þegar ég lyfti alltaf vinstri löbbini þegar ég er að labba hratt eða hlaupa.... hún er bara ekki að sjá bjútíið við þetta ! sko pontið með þessu er að gera mig eins sæta og hægt er til að allir geti dáðst að mér ;) Gott plan !?! Maríanna er ekkert voða hrifin af því og allataf þegar ég á að "standa fín" þá sættir hún sig ekki við kryppu heldur þá er ég bara toguð og teygð til að hún fari, dugar heldur ekki að leggjast, sitja, heilsa, gefa, five, rúlla, dauð ! VvvvÁáá er ALDREY hægt að gera henni til geðs !!!?!?!?!!!
Þannig við mæðgur erum í sýningarþjálfun ! ásamt pabba mínum Mola, systrunum Sölku og Söru. vonum að allt gagni bara vel Þarna á sýninguni en ég mæti í hringinn um 11 leitið á sunnudeginum ;)
Jæja ætla að segja þetta nóg núna !
kisskiss hug hug
Tara Dúlla og Maríanna
Nýj síða :PMaríanna Magnúsdóttir
HÆHÆVið "mæðgur" ætlum að reyna að vera duglegar að blogga hérna og segja ykkur svonna hvað er að gerst hjá okkur og svonna ;)
vona að þið fylgist spennt með !
"mamma"eða Maríanna ætlar vera vera sjúklega dugleg að setja myndir af mér AKA bjútíinu og skrifa svonna um mig hvað ég kann og þjálfun og svonna
lov lov
Tara Dúlla og Maríanna